Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir,
nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall.
Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar.
Mikið, mjög mikið af trefjum.
Þar til þú kúkar heilli peysu.
Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.
Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma:
vatnsþambið, trefjarnar,tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða.
Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund.
Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!!
En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr
(Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega.
Líka þegar þú ferð í frí.
Það er að segja ef þú ferðí frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur.
Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið.
Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi .
Þetta tekur sinn tíma!!!
Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð.
Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag.
Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu.
Til dæmis:
Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni.
Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með
makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.
Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann
með jógúrtinu.
Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn
eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum,
hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.
Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.